Elísabet Brynhildardóttir

Elísabet Brynhildardóttir (f.1983) vinnur í fjölbreytta miðla þó teikningar og skúlptúrar séu þar mest áberandi. Í verkum sínum skoðar hún teikninguna náið og mörk hennar við aðra miðla. Hún veltir fyrir sér samband okkar við efnisheiminn og þolmörk þess þar sem hugmyndir okkar um hverfulleika og tíma eru áberandi. Samband manns og listaverks er henni jafnframt hugleikið þar sem líkamleg nærvera áhorfandans getur skipt sköpum fyrir upplifun verka hennar; þar sem hreyfingar og afstaða hans hafa bein áhrif á tilvist listaverksins. Elísabet útskrifaðist frá University College for the Creative Arts árið 2007. Hún hefur tekið þátt í fjölbreyttum sýningum, er virkur meðlimur í Kling & Bang og hafa verk hennar meðal annars verið sýnd í Gerðarsafni, Kling & Bang, i8 Gallery, Listasafni Akureyrar, Verksmiðjunni á Hjalteyri, Nýlistarsafninu ásamt fleiri stöðum.

 

Elísabet Brynhildardóttir (b. 1983) works in a variety of mediums, most notably drawings and sculptures. Through classical materials she explores our relationship to the artwork and the artistic process whilst contemplating ideas of impermanence, time and material hierarchy. Alongside her artistic practice she is an active member of the artist-run Kling & Bang. Her works have been shown in i8 Gallery, Akureyri Art Museum, Kling & Bang, Skaftfell Center for Visual Arts and The Living Art Museum, amongst other places. Elísabet graduated in 2007 with a BA from University College for the Creative Arts, UK.