Ynja Blær

Ynja Blær (f. 1998, Reykjavík) lauk BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands vorið 2023. Hún vinnur helst í miðli blýantsteikningarinnar en inntak verka hennar er gjarnan hugleiðing á vitninu. Teikningarnar eru unnar í lögum yfir langan tíma, ýmist á pappír, steypu, eða grjót. Lýsa má ferlinu hennar eins og „long exposure” á filmumynd, þar sem mismunandi birtuskilyrði fá að máta sig inn í umhverfið og eftir verður kjarni þess, jafnvel kjarni vitundarinnar sem í því býr.