Matthías Rúnar Sigurðsson

Matthías Rúnar Sigurðsson (1988) er myndhöggvari og efniviður höggmynda hans eru steinar – grágrýti, blágrýti, gabbró, granít, marmari ofl. Matthías hlaut Hönnunarverðlaun Íslands árið 2021. Höggmyndir hans má finna í einkasöfnum, í safneign Listasafns Íslands, Safnasafnsins, Listasafns Reykjavíkur, í Seðlabankanum, hjá verðlaunahöfum íslensku bókmenntaverðlaunanna og úti á víðavangi.