
Vala Sigþrúðar Jónsdóttir
Vala Sigþrúðar Jónsdóttir (1993) býr og fæst við myndlist í Reykjavík. Verk hennar fjalla um upptök, afdrif og endalok þráðar og tengsl textíls við mannleg umhverfi og kerfi. Þráðarspuni og vefnaður úr afgangsefni eru oft útgangspunktar verka hennar og í gegnum spunann og vefnaðinn kannar hún endurnýjun, óvissu, samspil, skynjun og spennu.
Vala útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Gerrit Rietveld og MA frá Listaháskóla Íslands vorið 2025.
