Þórður Hans Baldursson

Þórður Hans (f. 1992) lauk BA-gráðu í myndlist af ArtScience braut í Konunglega Listaháskólanum í Haag (2023). Eftir útskrift hefur Þórður sýnt jöfnum höndum hérlendis sem erlendis. Árið 2024 hélt hann sína fyrstu einkasýningu á erlendri grundu í sýningarrýminu Nieuw Dakota (NL). Þá hefur hann tekið þátt í ýmsum sýningarverkefnum í Frakklandi, Hollandi og Belgíu.

Einkasýningar á Íslandi eru fjórar talsins Tól til Samlífis (2021) á neðri hæð og í garði Ásmundarsalar, Áhugaverðir staðir (2022), Úr sveit í borg í sveit (2023) og Land til sölu (2025) allar þrjár í Gallery Port. Verk Þórðar hafa einnig verið sýnd í Listasafni Reykjavíkur og Listasafni Akureyrar.