Sara Riel

Sara Riel (1980) er íslenskur myndlistarmaður sem vinnur þvert á miðla, meðal annars með teikningu, málverk, skúlptúr, innsetningar og list í almenningsrými. Hún er þekktust fyrir stór veggverk í borgarumhverfi.
Í verkum sínum rannsakar hún tengsl innri upplifunar og sameiginlegrar vitundar mannsins og gefur ósýnilegum tilfinningum, skynjunum og hugmyndum áþreifanlegt myndrænt form.