
Sæmundur Þór
Sæmundur Þór er myndlistarmaður sem starfar bæði í Reykjavík og Amsterdam. Í verkum sínum nýtir hann fjölbreytta miðla á borð við skúlptúr, kvikmyndir, fjármál, tísku og fjölmiðla og beitir kunnuglegum formum menningarinnar til að ögra þeim gildum og hugmyndum sem liggja þeim til grundvallar. Með verkum sínum leitast hann við að virkja ímyndunarafl almennings og kanna möguleika listarinnar til að hafa raunveruleg áhrif á samfélagið. Hann lauk tveggja ára dvöl við Rijksakademie van Beeldende Kunsten árið 2022. Verk hans hafa verið sýnd á alþjóðlegum vettvangi, meðal annars í de Appel, Amsterdam; ISCP, New York; Project Native Informant, London; ICA, Singapore og Musée d’Art Moderne de Paris.
