Katrín Elvarsdóttir

Katrín Elvarsdóttir (f.1964) lagði stund á nám í myndlist og ljósmyndun í Bandaríkjunum. Ljósmyndaverk hennar einkennast af brotakenndum en jafnframt óræðum frásögnum, þar sem leikið er með hugmyndina um sameiginlega minningarsköpun. Verkin innihalda oft frásagnir af dularfullum atburðum sem áhorfandinn verður óafvitandi hluti af, þar sem ákveðnir hlutir eru sýnilegir en öðru er leyft að liggja á milli hluta, og það sem útaf stendur kallast fram í hugskotsjónum áhorfandans. Þannig gerast verkin innan óræðs tíma og sögusviðs, uppfull tilvísana og styðjast við kvikmyndalega aðferðarfræði, mjúkan fókus og snarpa notkun ljóss og skugga.

Verk hennar hafa verið sýnd víðsvegar hér á landi og erlendis, má þar meðal annars nefna Listasafn Reykjavíkur og Listasafn Íslands, Forum Box í Helsinki, Ljósmyndasafnið í Seoul, Martin Asbæk gallerí í Kaupmannahöfn, BERG Contemporary í Reykjavík og Frankfurter Kunstverein í Frankfurt.