Gerla – Erla Geirsdóttir

Gerla – Guðrún Erla Geirsdóttir (1951) útskrifaðist frá MHÍ og Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam í Monumental Textiel og leikmynda og búningahönnun. Fyrsta einkasýning hennar var í Gallerí Suðurgata 7 (1978) – sú nýjasta í Glerhúsinu (2025). Verk hennar hafa verið valin á fjölda opinberra sýninga og henni hlotnast ýmsar viðurkenningar s.s. unnið samkeppni um textíl listaverk í Ráðhúsi Reykjavíkur (1991) – mjög stór ofin tjöld útsaumuð með refilsaum. Verk hennar eru í eigu helstu listasafna landsins sem og t.d. Sundhallar Reykjavíkur.
Gerla hefur unnið með ýmsa miðla – verk sem flest eiga það sameiginlegt að vera með femínískum undirtón.