
Anna Hallin
Anna Hallin er með meistaragráðu frá háskólanum í Gautaborg og í myndlist frá Mills College í Oakland í Kaliforníu. Anna hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis og erlendis og haldið einkasýningar á Íslandi, í Svíþjóð, Finlandi og Þýskalandi. Verk eftir hana eru meðal annars í eigu Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Kópavogs, Safnasafnsins, Listasafns Reykjanesbæjar, Listasafns Íslands, Fangelsismálastofnunar og Kirkjugarða Reykjavíkur. Anna hefur hlotið fjölda styrkja og verðlauna – t.d.frá HIAP í Finnlandi, IASPIS í Sviðþjóð, Trefethen Merit í Kaliforníu, Barkenhoff Stiftung í Þýskalandi og hefur henni verið úthlutað listamannalaunum og styrkjum frá Myndstef og úr Myndlistasjóði.
