Kristín Gunnlaugsdóttir

Kristín Gunnlaugsdóttir er fædd í Reykjavík 1963. Hún stundaði nám við Myndlista-
og Handíðaskóla Íslands frá 1984-87, lærði íkonagerð í klaustri í Róm á Ítalíu
1987-88 og útskrifaðist frá Accademia di belle Arti í Flórens 1988-94.
Kristín hefur eingöngu starfað við myndlist, haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í
samsýningum, heima og erlendis. Verk hennar eru í eigu helstu opinberra safna
landsins, ásamt fjölda fyrirtækja og einkaaðila.
Hún hefur fengið ýmsar viðurkenningar fyrir list sína og var veitt fálkaorðan árið 2018
fyrir framlag sitt til myndlistar.