
Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir
Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir (f. 1981) lauk MFA-gráðu frá School of Visual Arts í New York (2009) og BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands (2006). Listsköpun hennar einkennist af ríkri efniskennd og óhlutbundnu myndmáli á mótum tví- og þrívíddar, þar sem hún vinnur með málun og teikningu í steint yfirborð. Verkin fanga marglaga skynjun með vísunum í tónlist, heimspeki, dulspeki og sögu.
Áslaug starfar með Gallerí Þulu og hefur sýnt víða á Íslandi, í Evrópu og Bandaríkjunum, m.a. í Listasafni Íslands, Gerðarsafni, Listasafni Reykjavíkur og á listamessunum Market og Chart. Verk hennar eru í eigu Listasafns Íslands, Gerðarsafns og einkasafna.
