Sigurrós G. Björnsdóttir

Sigurrós G. Björnsdóttir (f. 1991, Reykjavík) er íslenskur listamaður búsett í Antwerpen, Belgíu. Hún lauk meistaragráðu í myndlist frá Konunglegu lista akademíunni í Antwerpen árið 2021 og BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2017. Verk hennar spanna bæði tví- og þrívíða miðla, þar á meðal skúlptúra, pappírsverk og innsetningar. Verk Sigurrósar einkennast af forvitni,
innri spennu og innsæi. Hún sækir efnivið í brotakenndar frásagnir, sérkennileg atvik eða lúmskar vísbendingar úr nánasta umhverfi sínu og veltir fyrir sér uppruna hluta, merkingu og tilviljun.