Sara Björnsdóttir

Sara stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 91–95 og lauk MA-Visual Arts frá Chelsea College of Art & Design í London 96–97. Frá útskrift hefur hún tekið þátt í fjölmörgum einka- og samsýningum á Íslandi og erlendis, verk hennar má finna í safneign Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur og Listasafns Árnesinga Hveragerði.
Verk hennar eiga rætur í hugmyndalist og spanna myndbönd, ljósmyndun, hljóð, klippimyndir og gjörninga. Með tímanum hefur vinna hennar og áhugi þróast í takt við vaxandi meðvitund um áhorfendur og rými. Að beina athygli áhorfenda að fíngerðum, nær ósýnilegum þáttum í umhverfinu, draga fram ólíkar birtingarmyndir fegurðar sem fléttast saman við óróleika.