
Emilia Telese
Emilia Telese (f. 1973) er ítalskur myndlistarmaður og fræðimaður búsett á Íslandi. Hún nam málaralist við Listaakademíuna í Flórens og lauk síðar doktorsprófi í Bretlandi. Hún vinnur með málverk, grafík, gjörninga og innsetningar. Frá árinu 1994 hafa verk hennar verið sýnd í söfnum og galleríum víða um heim, meðal annars í Louvre-safninu í París, á Feneyjatvíæringnum og í Royal Festival Hall í London. Í listsköpun sinni kannar hún tengsl efnis, tíma og mannlegrar reynslu og leyfir eiginleikum efna og sköpunarferlinu sjálfu að móta þróun verka sinna. Hún er félagi í SÍM, Íslenskri grafík og Printmaking Council. Verk hennar má sjá á Instagram: @emiliatelese.studio
