
Indriði Arnar Ingólfsson
Indriði Arnar Ingólfsson útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2016. Hann hefur starfað á sviði myndlistar, tónlistar og gjörninga og tekið þátt í sýningum og listviðburðum hérlendis og erlendis. Eftir dvöl í Berlín flutti hann aftur til Íslands árið 2020 og hefur síðan einbeitt sér í auknum mæli að málverki og teikningu. Árið 2025 hélt hann einkasýninguna Eldpadda, þar sem hann sýndi olíumálverk og blekteikningar.
