Selma Hreggviðsdóttir

Selma Hreggviðsdóttir lauk BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2010, MFA-gráðu frá Glasgow School of Art árið 2014 og meistaragráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands árið 2021. Hún hefur sýnt hér heima og víða erlendis og var tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna 2021. Selma gekk til liðs við Kling & Bang eftir útskrift 2010 og situr í stjórn þess. Í gegnum tíðina hefur hún unnið að ýmsum útgáfum og sýningarverkefnum samhliða listinni. Hún var meðal annars einn ritstjóra Endemis, sjónrits um samtímalist íslenskra kvenna. Hún hefur einnig stýrt sýningum í Listasafni Akureyrar og Gerðarsafni. Verk Selmu er að finna í opinberum söfnum og einkasöfnum.